Þeir sem setja rekstraröryggi á oddinn velja Volvo Penta og fá þannig stuðning fagmanna Brimborgar. Brimborg hefur verið með Volvo Penta umboðið í 22 ár og búa starfsmenn Brimborgar yfir gríðarlegri reynslu og geta veitt faglega ráðgjöf svo tryggja megi rekstraröryggi þitt sem best nú í sumar.
Brimborg þjónustar smábátaeigendur
Viðskiptavinir Brimborgar ættu að huga að því fyrir sumarið að hægt er að fá fast tilboð, að kostnaðarlausu, í lítil verk sem stór. Hjá Brimborg er veitt alhliða verkstæðis- og varahlutaþjónusta fyrir smábátaeigendur. Það er því ástæðulaust að láta reka á reiðanum, hringdu núna eða komdu í heimsókn og athugaðu hvað við getum gert fyrir þig. Það er rjúkandi kaffi á könnunni og Volvo Penta fagmenn bíða eftir því að fá að þjónusta þig.
Nýjar Volvo Penta vélar
Volvo Penta er í ótvíræðri forystu þegar kemur að vali á báta- og skipavélum, hvort sem er aðalvélum eða ljósavélum. Breið lína véla sem henta margvíslegum gerðum og stærðum báta tryggir hagkvæmasta valið og heildarlausnir samkvæmt þörfum notenda. Brimborg tryggir auk þess með öflugu þjónustuneti nauðsynlega þjónustu hér á landi með alhliða verkstæðis- og varahlutaþjónustu. Vertu meðal þeirra bestu. Veldu Volvo Penta hjá Brimborg.