Leitaðu
Smelltu á flokk

Volvo Penta frétt  Prenta þessa síðu

23. febrúar 2012
Volvo Penta | 07.06.2010

Jóhann Geirharðsson fær afhentan nýjan strandveiðibát frá Seiglu

Hér má sjá þá Sverri Bergsson(t.v.) frá Bátasmiðjunni Seiglu og Jóhann Geirharsson, eiganda bátsins.
Já þið lásuð rétt. Jói Geira, eða réttara sagt Geiri RE 121, er komin á flot. Jóhann Geirharðsson eigandi flutningafyrirtækisins Jóhann Geirharðsson ehf, fékk nýlega afhentan bát sem hann hyggst nota við strandveiðar í sumar.

Báturinn er 7,5 metrar að lengd og rúmar allt að 4,2 brúttó lestir. Vélbúnaðurinn í bátnum er D4-225 hestafla hældrifsvél frá Volvo Penta. Vélin skilar bátnum vel áfram og hann hefur siglt allt að 30 mílum. Brimborg óskar Jóhanni Geirharðssyni til hamingju með þennan nýja farkost í flotanum sínum.

Nýjar Volvo Penta vélar


Volvo Penta er í ótvíræðri forystu þegar kemur að vali á báta- og skipavélum, hvort sem er aðalvélum eða ljósavélum. Breið lína véla sem henta margvíslegum gerðum og stærðum báta tryggir hagkvæmasta valið og heildarlausnir samkvæmt þörfum notenda. Brimborg tryggir auk þess með öflugu þjónustuneti nauðsynlega þjónustu hér á landi með alhliða verkstæðis- og varahlutaþjónustu. Vertu meðal þeirra bestu. Veldu Volvo Penta hjá Brimborg.

Notaðar vélar

Smelltu hér og skoðaðu notaðar vélar sem eru í boði hjá Brimborg, Bíldshöfða 6.

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli