Fyrr í þessum mánuði sjósettu Trefjar ehf. í Hafnarfirði nýjan fimmtán brúttótonna fiskibát af gerðinni Cleopatra 36, sem búinn er 650 hestafla Volvo Penta D12 aðalvél tengd ZF V-gír. Báturinn er með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.
Vårliner til Noregs
Eigandi bátsins er útgerðarfyrirtækið Striptind AS í Kjøllefirði í Noregi og fékk báturinn nafnið Vårliner. Báturinn verður einkum notaður til línu- og netaveiða en mun einnig stunda veiðar á kóngakrabba, hluta úr ári. Báturinn fer til veiða í janúar 2008.
Fjórða D12 vélin til Trefja á árinu
Brimborg og Trefjar ehf. hafa átt afar ánægjulegt samstarf á þessu ári en þetta er fjórða D12 vélin á árinu sem Brimborg afhendir Trefjum. Auk þessara véla hafa Trefjar einnig valið vélasamstæðurnar IPS500 og IPS600 á árinu.
Volvo Penta er í ótvíræðri forystu þegar kemur að vali á báta- og skipavélum, hvort sem er aðalvélum eða ljósavélum. Breið lína véla sem henta margvíslegum gerðum og stærðum báta tryggir hagkvæmasta valið og heildarlausnir samkvæmt þörfum notenda. Brimborg tryggir auk þess með öflugu þjónustuneti nauðsynlega þjónustu hér á landi með alhliða verkstæðis- og varahlutaþjónustu. Vertu meðal þeirra bestu. Veldu Volvo Penta hjá Brimborg.